Bloggað um Ubuntu Linux

Hér ætla ég öðru hverju að blogga um reynslu mína af Linux heiminum og reyna um leið með því að plata fólk til að prófa þennan um margt skemmtilega heim - sem krefst hreint ekki eins mikillar tölvukunnáttu og maður gæti haldið. Það er líka leikur einn að setja Ubuntu upp á tölvu sem notar fyrir Windows af einhverju tagi og velja svo bara stýrkierfi við ræsingu. Svo fólk getur hæglega smellt þessu upp án þess að vera að brenna neinar brýr að baki sér. Ég er vitaskuld að skrifa þessa færslu í tölvu sem keyrir Ubuntu Linux.

Í gær 28. apríl leysti Canonical samfélagið úr læðingi nýja Ubuntu Linux útgáfu nr. 11.04 sem þeir kalla Natty Narwhal, sem ég hef leikið mér að því að kalla Nautnafulla Náhvalinn, þótt það sé nú ekki bein þýðng. Ubuntu er vinsælasta Linux kerfið fyrir einkatölvur í heiminum í dag, enda í flesta staði afar vel heppnað kerfi með fullt af ágætum hugbúnaði og allt fullkomlega ókeypis.

Ubuntu 11.04 sem leysir 10.10 af hólmi skartar nýju notendaviðmóti sem kallast Unity og kemur í stað Gnome 2 sem ásamt KDE hefur ráðið ríkjum í Línux heiminum um skeið.  Það eru afar deildar meiningar um hvort Unity sé til bóta fyrir Ubuntu og það verður dálítið spennandi að fygljast með framvindu mála hvað það snertir. Annað val hefði geta verið Gnome 3 sem einnig er nýtt og spennandi notendaviðmót fyrir Linux og svo heyrast vitaskuld íhaldssamar raddir sem vilja halda áfram að nota Gnome 2, eða hreinlega skipta yfir í önnur viðlíka kerfi sem vinna jafnvel betur á eldri og hægvirkari tölvubúnaði, svo sem XFCE og LXDE sem einnig eru notendaviðmót á Linux.

screenshot_unity_1-500x312.png

Ubuntu 11.04 með Unity

 

gnome-3-screenshot.png

Ubuntu með Gnome 3

Hér eru torrent hlekkir fyrir Ubuntu 10.10 sem er stabílt og öruggt Ubuntu - Open Office kemur með:

- 32 bit

- 64 bit

Hér fyrir Ubuntu 11.04 sem er nýtt og spennandi, en ekki eins stabílt og 10.10 ennþá, það kemur:

- 32 bit

- 64 bit

Og hér eru helstu vefirnir (að mínu mati) um Ubuntu fyrir áhugafólk:

- http://www.omgubuntu.co.uk/

- http://www.webupd8.org/

Hér er eldra blogg eftir sjálfan mig um reynslu mína af Linux:

- Linuxvæðingin

- GIMP – trúarbrögð og tölvunördar

- Stóra færslan um Linux


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband