Jónína Ben og Detoxið gagnrýnd í kvöldfréttum
10.6.2010 | 23:38
Í kvöldfréttum Stöðvar tvö var viðtal tekið við Svan Sigurbjörnsson lækni um vankanta Detox meðferðarþjónustu Jónínu Ben. Að hans sögn er það til í dæminu að fólk lendi í verkjakrísu í framhaldi af að hafa hætt að taka lyfin sín og treyst þess í stað á Detox. Einnig mun fólk hafa þurft aðstoð lækna og verið lagt inn í framhaldi af Detox meðferð vegna blóðþrýstings - og blóðsykurskrísu. Um þetta var líka fjallað á Pressan.is í dag.
Svanur hefur áður gagnrýnt Jónínu fyrir yfirlýsingargleði um gagnsemi þjónustu sinnar og varað við að hugmyndirnar stríði sumar gegn þekkingu læknisfræðinnar. Fleiri hafa einnig bent á að eitt og annað sem haft er eftir henni og lesa má á heimasíðu fyrirtækis hennar sé dálítið hæpið og sumt hljóti hreinlega að teljast til lyga.
Við gagnrýni og umfjöllun af þessu tagi bregst Jónína jafnan við með því að kalla umtalið árásir á sig og vænir gagnrýnendur um að vera að þessu af vonsku í sinn garð, en ekki einlægum vilja til að farið sé eftir lögum og reglum. Umfjöllun Svans um hana þykir henni ekki makleg og kallar hún hana m.a. öfga- og níðskrif.
Hér eru færslur Jónínu um málið frá því í kvöld á Facebook síðu hennar sem mér var bent á:
Ég hvet læknasamtökin til þess að fara yfir öfgaskrif, níðskrif, blekkingarleik, lyfjasýki, trú-leysiisofstæki, tengsl við Hreiðar Má, áráttuhegðun og lygar þessa manns. Ég og fleiri höfum fengið nóg af skrifum hans sem einkennast af ofsóknaræði. Hann er lyflæknir og matar landlækni á þvælu. Tékkið á tengslum hans við þá sem ég hef verið að gagnrýna í viðskiptalífinu og þá sér fólk hvað liggur að baki þessu ef það er þá ekki hrein geðveila. Ég hef fengið kvartanir undan honum ítrekað.
og
Vegna gengdarlausra árása á mig og mitt fyrirtæki vil ég bjóða öllum fjölmiðlum að senda einn fulltrúa í detoxmeðferð ókeypis, ég vil bjóða landlækni að koma og kynna sér meðfeðrina, tala við fólkið sem að hjá okkur er og kynna sér málið sjálfur. Ég hvet Arnþrúði á Sögu, Sollu Eiríks og biskupinn að segja reynslu sína af Svani Sigurbjörnssyni.
Það sem Jónína og fyrirtæki hennar hafa verið gagnrýnd fyrir snýr fyrst og fremst að upplýsingagjöf í samræmi við almennar reglur. Ætli hún t.d. að fullyrða að meðferðin lækni sjúkdóma af ýmsu tagi þarf hún að búa yfir viðurkenndum gögnum sem sýna fram á það. Ætli hún að fullyrða að pólskir læknar hafi sannreynt fullyrðingar hennar þarf hún að geta bent á þá lækna og hvar gögn þeirra og viðurkenndar niðurstöður eru að finna.
Geti hún það ekki þarf hún þó alls ekki að loka eða neitt slíkt, heldur aðeins að velja annað orðalag í auglýsingar fyrir starfsemi sína, svo hún teljist ekki sigla undir fölsku flaggi, því það má vel vera að fólk njóti góðs af meðferðarúrræðum hennar og ekkert er við það að athuga að hún bjóði hverja þá þjónustu sem hún hefur trú á að sé til góðs og henni sjálfri til framdráttar. En hvernig sem því er háttað þarf hún að selja þjónustuna undir réttum formerkjum.
Það er sem sagt ekki verið að ráðast að persónu hennar og fyrirtæki með því að gagnrýna málflutning hennar og auglýsingamennsku, heldur einfaldlega verið að ætlast til þess að hún fylgi sömu reglum og allir aðrir sem selja vilja þjónustu. Ætlast er til að innihaldslýsingin sé rétt.
Á vefsíðu hennar, Detox.is, segir til dæmis þegar enska er valin:
The Jonina Ben's detox therapy is a recognized medical method in Iceland but was originally developed in Poland and aims at enabling the body to heal itself.
Er Detox meðferðin viðurkennd lækningaraðferð á Íslandi? Ef svo er ekki, er þetta einfaldlega lygi og réttast að Jónína breyti textanum svo hann gefi útlendingu ekki falska mynd af því sem verið er að selja.
Á Detox.is segir síðan, að því er virðist um Jónínu:
She has years of experience behind her and the results are unbelievable. Research has shown that Jonina Ben's detox treatment is preventive and curing of modern civalitions deceases.
"Research has shown"? Er hér átt við vísindalegar rannsóknir? Hvar má lesa um þær, hver framkvæmdi og hvernig?
Á vefnum er fjallað um sérfræðinga sem þróað hafi aðferðina og rannsakað hana:
Dr. Agneska Lemanczyk is a respected doctor at a hospital close to Gdansk, Poland. She is well known to many Icelanders for her research into detox therapy and its beneficiary effect on health and well being. Now she is in Iceland and will give lectures on her research and experience.
Hér er verið að notast við doktorsgráðu einstaklings til að ljá þjónustunni viðurkennt og virðulegt yfirbragð. Það er gjarnan gert og í sjálfu sér eðlilegt. En hverjar eru þessar rannsóknir sem hún hefur framkvæmt og hvar má lesa um þær? Á gjörvöllu internetinu virðist Dr. Agneska Lemanczyk ekkert vera nefnd á nafn nema í kringum íslenska umfjöllun um Detox. Á risagagnagrunninum pubmed.gov er ekki að finna greinar eftir hana frekar en stöllur hennar Dr. Ewu Dabrowska eða Alicja Drewnowska sem Jónína líka nefnir sem sérfræðinga sem þekki til meðferðarinnar.
Fyrst svona margar rannsóknir hafa verið gerðar á gagnsemi meðferðarinnar og svona mikið af fræðingum eru viðriðnir hana - þar af a.m.k. tveir með doktorsgráður - hlýtur að vera lítið mál fyrir Jónínu að draga fram pappíra sem sem sýna að hún sé heiðarleg manneskja og sé að byggja fögur fyrirheit sín á raunverulegum upplýsingum og staðfestri þekkingu.
En ef hún er bara að tala um að henni þyki fólkið sem fer frá henni vera hresst og ánægt, að það segi henni reglulega að því líði vel og sjái ekki eftir ferðinni til Póllands, þá er það gott og blessað, en þá á hún ekki að vera að tala um "rannsóknir" í sömu andrá og doktorsgráðum er flaggað, það gefur allt aðra mynd af þekkingunni sem starfsemin er sögð byggja á.
Ofsafengin viðbrögð Jónínu við umfjöllun af þessu tagi gefur manni helst tilefni til að ætla að hún geti ekki fært sönnur á fullyrðingar sínar og að rannsóknirnar séu ekki til. Það væri því mun hyggilegra að bregðast rólega við og gera gögnin aðgengileg á netinu og benda á ferilskrá sérfræðinga sinna. Þá væri ljóst að hún hefur ekkert að fela og aðfinnslur Svans sem annarra ekki á rökum reistar.
Oftast fara menn hreint ekki í launkofa með hvað það er sem þeir eru með gráður í. En það er fjandanum erfiðara að komast að því hvað upphafskona fræðanna, Eva (Ewa) Dabrowska, lærði og hvar. Það eina sem ég hef fundið um hana er að hún fékk hugmyndir sínar um mataræði upphaflega úr bók eftir Kinga Wisniewska-Roszkowska. Eva er sögð vera kominn fast að áttræðu svo hún er augljóslega ekki þessi kona hér eða þessi hér, svo hver er hún og hverjar eru rannsóknir hennar?
Já, það er ýmsu ósvarað um sérfræðingana og rannsóknirnar hennar Jónínu. Það hlýtur hún að sjá sjálf og því ekki úr vegi að fræða bara skrílinn um þessa hluti svo henni sé ekki legið á hálsi fyrir að vera ónákvæm í kynningum sínum á Detoxinu. Kona sem ekkert hefur að fela þarf ekki að hafa áhyggjur af aðfinnslum fáeinna efasemdarmanna, er það nokkuð?
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 11.6.2010 kl. 21:41 | Facebook


ace
apalsson
biggihs
egill75
evaice
jaherna
zeriaph
hjaltirunar
hoskibui
naflaskodun
prakkarinn
tannibowie
maggadora
orvitinn
mofi
omnivore
petur
sviss
robertb
sindri79
steinn33
stjornuskodun
svanurg
svanurmd
svatli
saemi7
valgardur
vigga
agbjarn
olijon
weapon
Athugasemdir
Frábær pistill og samantekt hjá þér Kristinn.
Meira að segja reyndur grasalæknir sem ég ræddi einu sinni við, sagði að detox aðferðin geti verið mjög varasöm og allt of harkaleg fyrir fólk sem er búið að eiga við veikindi að stríða lengi og sem hefur þurft að taka lyf eða verið í lyfjameðferð. Sagði að endurhæfing slíkra aðila þyrfti að vera hæg en stígandi.
Mér finnst alveg hrikalegt hvað Jónína segir um Svan. Hún ætti að skoða sjálf sína öfgatrú. Þessar lofgjörðir um hana á ensku sem þú vitnar í eru framsettar eins og að hún sé einhver "gúru".
Eins og þetta:
She has years of experience behind her and the results are unbelievable. Research has shown that Jonina Ben's detox treatment is preventive and curing of modern civalitions deceases.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 11.6.2010 kl. 00:46
Góður pistill, að breyta um lífstíl getur örugglega hjálpað mörgum og efast ég ekki um að margir sem fara í gegnum detox meðferðina hjá Jóninu líður mikið betur á eftir og ná að breyta sínum lífstíl til hinns betra. En sammála þér um það að Jónína á að fara varlega í yfirlýsingar í fjölmiðlum og á heimasíðu sinni.
Birna Pála Rúnarsdóttir (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 01:36
Í kjarnan tel ég að Jónína sé með góða söluvöru en hún er að ofselja sig sem er óþarfi held ég.
Hin íslenska læknastétt er hrokafull og státar t.d. af heimsmeti í útdeilingu þunglyndislyfja en það er heilbrigð skynsemi að ætla hluta þess fólks að geta læknast með heilbrigðu líferni og mataræði eins og Jónína boðar.
Ég tel framtak Jónínu vera ákveðinn nýsköpunarsprota sem íslenskir læknar hefðu getað byggt ofaná með faglegri þekkingu en þeir kjósa að henda rífa niður sem er miður.
Það er augljóst að heilbrigt mataræði og hreyfing spari heilbrigðiskerfinu mikið fé en hversu mikið verður ekki útkljáð hér. Ég man ekki til þess að hin íslenska læknastétt hafi beitt sér af sama krafti fyrir betri lifnaðarháttum og Jónína gerir. Þeir eyða meiri tíma hjá pilluheildsölum og virðast ekki hafa nokkurn áhuga á að breiða út fyrirbyggjandi heilbrigði.
Jónína hefði bara átt að selja detoxið með faglegri hætti og gefa ekki þetta færi á sér fyrir niðurrifsseggi í læknastétt því það er göfugt verk að fá fólk til að breyta um lífsstíl. Enn göfugra en að skrifa út lyfseðla
Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 02:27
Jónína (og margir fleiri, nefni engin nöfn en sumir þeirra skrifa athugasemdir á þessari síðu) ættu að lesa bókina Ertu viss? sem var nýlega endurútgefin á íslensku. Alveg einstaklega góð lesning um ástæður þess að fólk trúir því sem það trúir þrátt fyrir að allt bendi til að það sé rangt. Fólk er alls ekki vitlaust, mannshugurinn hefur einfaldlega ákveðnar takmarkanir; hann alhæfir mjög mikið á kostnað nákvæmni.
Í bókinni er meðal annars talað um hvort viðmið um árangur sé sett fyrir eða eftir tiltekna meðferð. Ef ákveðin viðmið eru ekki skilgreind fyrirfram er hætt við að hvert smátilvik er túlkað sem bati eða árangur þó það sé alveg innan skekkjumarka sem búast mætti við vegna tilviljanakenndrar sveiflu.
Sveinn Þórhallsson, 11.6.2010 kl. 03:13
ætli það sé nokkuð bannað að benda á þessar staðreyndir (þ.e. algjör skortur á rannsóknum sem sýna fram á virkni detox) á skilti á kanavellinum?...
Sveinn Þórhallsson, 11.6.2010 kl. 03:22
En þessar persónuárásir Jónínu á Svan segja allt sem segja þarf. Svanur hefur ekkert annað gert en að gagnrýna meðferðina, ekki hana persónulega. Ég sé ekki betur en að hún hafi skitið allsvakalega upp á bak með því að saka hann um árásir á sig og róta svo sjálf í leðjunni eftir einhverju til að kasta...
Sveinn Þórhallsson, 11.6.2010 kl. 03:27
@Gylfi Gylfason: Ég veit ekki betur til þess en að allt það sem má teljast til góðra hugmynda við þessar meðferðir hjá Jónínu sé einmitt hlutir sem að allir læknar hafa bent á í hundrað ár. Hollt mataræði og hreyfing er eitthvað sem allir læknar hafa reynt að fá fólk til að gera. Og líka þegar að læknirinn skrifar upp á þunglyndislyf þá oftast fylgir með strangar leiðbeiningar að þetta hjálpi ekkert nema að þú takir þér daglega göngutúra og breytir um lífsstíl með. Flest þunglyndislyf byggja á því að þú gerir það þar sem að þau gera þig ekki glaðari heldur auðvelda þér bara að gera breytingar.
Þannig að hvað gerir þetta að byltingu þegar að hún segir þetta þegar að þetta er það sem læknar eru búnir að segja.
Jón Grétar (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 08:05
Takk fyrir innleggin gott fólk.
Það er ekki að ástæðulausu að menn gerast tortryggir þegar yfirlýsingar eru ekki í neinu samræmi við aðgengi að gögnum og þegar notast er við lítt skilgreinda doktorsgráður óþekkts fólks. Það eru nefnilega vel þekktar aðferðir úr kukl-geiranum og bendir ósjaldan til þess að verið sé að fara frjálslega með staðreyndir.
Við þurfum að tryggja að það hafi einhverja merkingu að vitna í doktora í fræðum og tala um rannsóknir.
Kristinn Theódórsson, 11.6.2010 kl. 08:27
Það er síðan skemmtilegur tvískinnungur í heilsugeiranum svokallaða að efast mikið um hefðbundnar lækningar og amast út í fræðimennsku, en keppast engu að síður við að notast við doktorsgráður og meintar rannsóknir til að gefa eigin söluvöru vandað yfirbragð.
Ef fræðimennska vísindaheimsins er svona lítil og læknastéttin bara leppur big-pharma, hvað er þá verið að keppast við að notast við viðurkenningargráður úr því sama kerfi til að ábyrgjast eigin vöru?
Kristinn Theódórsson, 11.6.2010 kl. 08:32
Úff, mikið rosalega er ég sammála öllu sem þú skrifar hér Kiddi. Ég ætlaði að blogga sjálfur um þetta en hef voða litlu við skrif þín og Svans að bæta!
Það er kostulegt að fylgjast með þessum já-kór sem hefur raðað sér í kringum Jónínu á Facebookinu hennar, og kostulegt að sjá hvaða rök fólk getur tínt til til að verja detoxið. Eins og t.d. að ristilskolun sé ævaforn hefð, það sé hægt að fletta því upp í sögubókum. Nú eru blóðganir líka ævaforn hefð, þú getur flett því upp í hvaða sögubók sem er. Ég ætti kannski að opna blóðgunarstofu, og verða svo sótillur útí læknastéttina þegar fólk fer að deyja í umvörpum eftir meðferðina hjá mér.
Siggeir (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 08:51
Kristinn, Þakka faglega greinargerð. Sem næringarfræðingur finnst mér skelfilegt að hægt sé að bjóða upp á "nær-svelti" meðferð (500 hitaeiningar á dag) og því miður hef ég sannreynt að fólk sem hneygist til átröskunar (svo sem lystarstols) leiti í detox!!
Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur
Ólafur Gunnar Sæmundsson (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 13:52
Sniðugt hjá henni að smella geðveilu með svona til öryggis ef fólk kaupir ekki samsærið um viðskiptamennina og Svan. Ljómandi að hafa val um ástæður fyrir þessum illindum hans Svans. Ég hefði nú skellt með að líklega væri hann útsendari andskotans þar sem hún hefur orðið svo góð sambönd í þá heima.
Einar (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 13:57
Kristinn aths. 8
Ef fræðimennska vísindaheimsins er svona lítil og læknastéttin bara leppur big-pharma, hvað er þá verið að keppast við að notast við viðurkenningargráður úr því sama kerfi til að ábyrgjast eigin vöru?
Já af hverju ????
Margrét St Hafsteinsdóttir, 11.6.2010 kl. 20:01
Ég held að það sem flestir eru mest að fetta fingur út í varðandi þetta svokallaða detox er þetta rassapot. Þetta er auðvitað bara fáránlegt. Þau eru alltaf að tala um einhverja köggla og drasl sem á að vera í ristlinum og safnast þar upp, sem stólpípan á að hreinsa úr ristlinum og þar með gerbreyta lífi fólks, þar sem þannig eiga að hreinsast úr honum allskonar uppsöfnuð eiturefni og óþverri.
Sjálfur hef ég oftar en einu sinni séð að innan í mér ristilinn á sjónvarsskjá, þegar framkvæmd hefur verið á mér ristilspeglun. Þá hef ég að sjálfsögðu verið búinn að hreinsa mig út með því að drekka eitthvert sull og mikið af vatni, og síðan látið ristilinn sjálfan um að koma þessu í dolluna. Semsagt engin stólpípa. Það sem ég sá á skjánum var rennislétt slímhúð, gersamlega tandurhrein. Engir kögglar og uppsafnað drasl. Þetta er auðvitað bara þvæla.
Það segir sig auðvitað sjálft að það breytir lífi fólks að takast á við fíkn sína í mat og fara að beita sig aga. Það er líka örugglega það sem fólk fær við að kasta sér í fang Jónínu. Er ekki best að kalla hlutina sínum réttu nöfnum og láta vera að fylla fólk af lygi og þvælu. Eða...., er það ekki annars?
Theódór Gunnarsson, 11.6.2010 kl. 21:47
Það er verið að fetta fingur út í ýmislegt er viðkemur yfirlýsingum um virkni meðferðarinnar þ.m.t. ristilskolun. Kvörtun Svans og félaga til Landlæknisembættisins má lesa hér.
Kristinn Theódórsson, 11.6.2010 kl. 22:03
Margrét
Ja, við vitum náttúrulega af hverju. Það er af því að markhópurinn kann þrátt fyrir allt vel að meta virðulega titla sem gefa til kynna vísindalega sérþekkingu. En heilsugeirinn er því miður ansi gjarn á að notast við hvað sem er í þeim efnum til að ganga í augun á viðskiptavinum.
Ég er eina með góða sögu af slíku sem ég þarf að blogga um fljótlega!
Kristinn Theódórsson, 11.6.2010 kl. 22:08
Það er mjög áhugavert að lesa svar Jónínu til aðstoðarlandlæknis um þessi mál, það má finna hér.
Svarið ber með sér að því fer fjarri að Jónína skilji hvers verið er að óska af henni, því þetta bréf segir hún sjálf að hafi verið svar hennar sem útskýri hennar hlið málsins, og á því hafi ekki verið tekið mark.Þetta er í raun um margt áhugavert tilfelli af árekstri kerfisins við manneskju sem alls ekki skilur kerfið - nú eða öfugt. Þarna er ekki verið að tala sama tungumálið. Hvað segið þið? Hvernig er best að taka á svona nokkru?
Kristinn Theódórsson, 12.6.2010 kl. 00:08
Ég tel vert að benda á, sjálfum mér til upphafningar, að ég var ekki búinn að lesa greinagerð landlæknis þegar ég skrifaði kommentið hér að ofan og tók dæmið af blóðtökum. Great minds think alike I guess!
Siggeir (IP-tala skráð) 12.6.2010 kl. 02:08
Jónína getur nú boðið upp á alþrif, þökk sé eiginmanninum, Gunnari. Hún hreinsar líkamann, hann sálina og afhommar þegar þurfa þykir.
Annars skil ég ekki hvers vegna fólk er að sækja í svona rugl. Getur fólk ekki bara fastað og drukkið ávaxtasafa heima hjá sér, ef málið snýst um það? Er gáfulegt að borga morðfjár fyrir að fá ekki að borða og verða að drekka eitthvað sull?
Ég hefði ekkert á móti því að tapa slatta af pundum í þyngd en vil helst ekki tapa miklu af þeim í peningum nú í kreppunni. Það vantar aldrei þá sem bjóða upp á töfralausnir, sem á endanum töfra aðeins peningana í veskinu hjá manni burt.
Theódór Norðkvist, 12.6.2010 kl. 11:29
@Theódór Norðkvist: Það er rétt að halda því til haga að Gunnar er hættur að afhomma.
Siggeir (IP-tala skráð) 12.6.2010 kl. 12:55
Fyrir peninga sem eru í umferd og samthykktir eru sem virkur gjaldmidill er haegt ad kaupa braud og mjólk. Flestir ef ekki allir eru sammála um thad. Prestar selja sinn Gud og kaupa braud og mjólk fyrir peningana. Vid óbreyttir borgum fyrir thad sem prestarnir selja. Hefur landlaeknir gert athugasemd vid sölumennsku prestanna? Hefur landlaeknir farid fram á vísindalegar sannanir thar ad lútandi? Prestarnir eru jú í hörkugódum business...stabíll og thaegilegur business. Prestarnir fá "kikk" thegar their lesa upp sögurnar úr biblíunni fyrir hraedurnar fáu á bekkjunum sem hlusta á. Kikk og peninga fá prestarnir. Prestarnir kaupa sínar Toyotur, íbúdir eda hús fyrir peningana sem vid borgum theim. Er nokkud undarlegt ad Jónína Ben. vilji ekki skorda sig vid fáránlegar vísindalegar sannanir. Thetta er jú hennar business. Hún vill audvitad kaupa sinn Lexus og sitt hús fyrir thá peninga sem fólk af algerlega frjálsum vilja borgar fyrir hennar thjónustu. Sjálfstaediflokkurinn er líka í hörkugódum business. Jafnvel thótt Sjálfstaedisflokkurinn med hjálp Framsóknarflokks hafi rústad efnahag thjódarinnar og gert flestum ef ekki gott sem öllum íslendingum erfidara fyrir og thad sannad med skýrslu thá er Sjálfstaedisflokkurinn ennthá í hörkugódum og stabílum business. Nú sem ádur faer flokkurinn atkvaedi fólksins.
Jónína Ben, prestarnir og Sjálfstaedisflokkurinn vita hvad íslendingar vilja. Engin vísindaleg sönnun er naudsynleg.
Hvort er betra: Vanillukex eda Súkkuladikex?Hvort er betra: Vanillukex eda Súkkuladikex? (IP-tala skráð) 12.6.2010 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning