Um sannleiksást Jónínu Ben
12.6.2010 | 14:16
Sannleikurinn er sagna bestur - segja þeir og það hefur mér líka yfirleitt fundist, þó maður segi kannski ekki hnöttóttu manneskjunni sem er á undan manni í röðinni á Subway og er að fá sér extra mikið majónes, að hún sé með ranghugmyndir um hvaða mataræði komi sér best fyrir hana. Það má síðan deila um hvort þeir þankar eru fordómar eða raunsæi.
Sannleiksást er hinsvegar ást sem ekki virðist hrjá alla jafn mikið. Frú Jónína Benediktsdóttir er t.d. að því er virðist tiltölulega laus við sannleiksást og fólkið sem klappar henni lof í lófa í hvert sinn sem hún tjáir sig er líklega heldur ekkert voðalega upptekið af sannleikanum, enda oft mun skemmtilegra að eltast við drauma og langanir en að horfast í augu við sannleikann.
Í viðtali dagsins við Jónínu á Pressunni segir hún til dæmis að Svanur Sigurbjörnsson hafi farið að skrifa um sig langlokur eftir að hún giftist Gunnari í Krossinum:
Hann skrifar langlokur um fólk, hann er einn af þessum í Vantrú og eftir að ég giftist Gunnari hefur hann farið að skrifa langlokur um mig. Ég veit um fólk sem hann hefur sýnt mikinn dónaskap.
Jónína giftist Gunnari í mars á þessu ári og samband þeirra spurðist út nokkrum vikum þar á undan. En greinar Svans um Detox meðferðina eru skrifaðar:
- 01.08.2009 - Hvers vegna ekki Detox
- 20.08.2009 - Hvað er kukl?
- Kvörtun hans og annarra lækna til Landlæknisembættis var send embættinu 15.12.2009
Það er sem sagt ekkert til í því að samband hennar við Gunnar í Krossinum komi á nokkurn hátt við sögu og helst að maður ætli að hún sé að reyna að æsa fólk í Krossinum til liðs við sig með þessum lygum. En vonandi sér sá ágæti hópur fólks að trúariðkun hennar og þeirra er málinu með öllu óviðkomandi.
Það eru hinsvegar rangfærslur af þessu tagi sem öll umræðan snýst um. Starfsemi Jónínu er kynnt og markaðssett með lygum um rannsóknir, menntun meðferðaraðila, reynslu og þekkingu sem hreinlega ekki virðist vera fyrir hendi. En það er ekki verið að reyna að fá fyrirtæki hennar lokað eða klekkja á henni persónulega, og ekki heldur fyrir að vera trúuð, eða fyrir að vera gift Gunnari í Krossinum eða neitt í þeim dúr. Það er aðeins verið að ætlast til þess að hún auglýsi starfsemi sína heiðarlega og segi ekki hluti í hagnaðarskyni í nafni fyrirtækis síns sem hún getur ekki staðið við eða sýnt fram á að séu sannir.
Það hljóta allir að skilja að fái hver sem er að slá um sig með tilvitnunum í doktora í ýmsum fræðum og meintar rannsóknir þeirra án þess að þess sé gætt að um viðurkennda doktora og viðurkenndar rannsóknir sé að ræða, verður erfiðara en ella að átta sig á hvað þykir vísindalega staðfest og hvað ekki.
Ég gæti til dæmis opnað heilsustöð á morgun og predikað 400 kkal. mataræði og mikið appelsínuát, en ætli ég að notast við tælenska sérfræðinga til að gefa meðferð minni vísindalegt yfirbragð þarf ég að tryggja að þeir sérfræðingar séu með viðurkenndar gráður og hafi framkvæmt rannsóknir samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Því hafi þeir ekki gert það þarf kynningarefni mitt að endurspegla að um óviðurkennd fræði sé að ræða á Íslandi, en að í Tælandi þyki þetta alveg ferlega fín meðferð.
Á facebook síðu Jónínu keppist fólk við að stappa í hana stálinu og er það vitaskuld gott mál og ánægjulegt að hún eigi vini og stuðningsmenn. En fólk þar virðist upp til hópa telja að verið sé að finna að Detoxinu af ástæðulausu. Þar segir liðið hluti á borð við:
Það er ævinlega ráðist á frumkvöðla á Íslandi. Ástæðan er órtúleg frekja og öfund újtí náungann, leti að gera nokkuð' sjálfur og andskotast útí alla dugleg, let me know.
Jónína mín, þú ert frábær manneskja - heiðarleg og klár með miklar hugsjónir. Þú hefur hjálpað mörgum sem ég þekki. Hefur Landlæknisembættið virkilega ekkert betra að gera en að ráðast á þig ásökunum og dylgjum!?!
Í Guðana bænum hættið þið að reyna að knésetja Jónínu, það kallast einelti á góðri íslensku. Hún hefur fullan rétt á því að stunda sínar óhefðbundnu læknismeðferðir. Og það er með hennar aðferð eins og með mörg lyf eða lækningar, það hentar ekki öllum. Fólk á að hafa val og fá að velja í friði.
Fólk sem lýgur að þjóðfélaginu í hagnaðarskyni um þekkingargrunn sinn og bakland fyrirtækis síns á ekki að fá að vera í friði með það, ekki frekar en fjárglæframenn eiga að fá að ljúga til um eignarhald og umsvif fyrirtækja sem þeir eiga eða starfa fyrir. Ef Jónína þarf að ljúga til um eðli þjónustu sinnar til að hún seljist er hún einfaldlega ekki að selja nógu góða vöru. Henni er engin vorkunn þó ætlast sé til þess að hún fullyrði ekki hluti um þjónustu sína sem hún getur ekki sýnt fram á að séu sannir.
Það er síðan í anda þeirrar sannsögli sem Jónína Ben virðist temja sér, að hún spyr hvort Nordica Spa eigi að sýna vísindalegar niðurstöður af árangri sínum:
Eiga Nordica að sýna vísindalega niðurstöður af árangri á Nordica SPA ? Á Grand Hótel að sýna vísindalegar niðurstöður af reynslu manna á Grand SPA ? Allir einkaþjálfarar ræða við kúnnana sína um lyf og hvetja þá gegn lífsstílssjúkdómum, velja fæði og hreyfingu og spjalla við fólkið. Detoxhótelið gerir nákvæmlega það sama en fólk býr hjá okkur á meðan.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 15.6.2010 kl. 19:01 | Facebook


ace
apalsson
biggihs
egill75
evaice
jaherna
zeriaph
hjaltirunar
hoskibui
naflaskodun
prakkarinn
tannibowie
maggadora
orvitinn
mofi
omnivore
petur
sviss
robertb
sindri79
steinn33
stjornuskodun
svanurg
svanurmd
svatli
saemi7
valgardur
vigga
agbjarn
olijon
weapon
Athugasemdir
Detox eru bara enn ein trúarbrögðin, ef eitthvað er að marka viðbrögð fólks við þær athugasemdir sem ég hef skrifa um þetta mál...
Sveinn Þórhallsson, 12.6.2010 kl. 20:27
Það þarf ekki að velta fyrir sér sannleiksást manneskju sem er gift atvinnu lygara.
Styrmir Reynisson, 13.6.2010 kl. 08:51
Jónína ætti að átta sig á því að internetið man allt:
Á Detox.is stendur þó (feitletrun mín):
og
og um fyrirlestur sem hún heldur stendur
Jónína er því greinilega með einhverjar rannsóknir undir höndum - nema hún sé að ljúga. Hún lýgur auðvitað blákalt þegar hún segir að meðferðin sé viðurkennd á Íslandi, en hafi hún rannsóknir undir höndum, rannsóknir sem hún getur unnið heilan fyrirlestur upp úr, hlýtur að vera lítið mál að senda landlækni þær og þagga þar með niður í úrtölufólkinu. Nema auðvitað að rannsóknirnar séu ekki til, eða séu svo hroðvirknislega unnar að ekki sé mark á þeim takandi.
Varla er það bara þrjóska í Jónínu að sitja á öllu þessu rannsóknarefni?
Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 13.6.2010 kl. 21:20
Þau eru bara að bíða eftir réttu augnabliki til að láta rannsóknirnar vaða til skoðunar og birtingar í virtustu læknatímaritum heims. Eftir það verður svelti og ristilskolun staðfest allra meina bót og læknastéttin lögð af.
Kristinn Theódórsson, 13.6.2010 kl. 22:34
Hva, þetta er bara seremónískur megrunarkúr með stóran verðmiða og vatnsslöngu, ekkert til að vera að æsa sig yfir, meina ef einhver vill láta stinga krana upp í neðra ljósopið og láta skrúfa frá, þá sé eg ekkert að því... geriri svosem ekkert gagn nema fólk eigi hugsanlega við vandamál að etja í þörmum eins og hægðartregðu og þannig. Megrunarkúr og látlaust fæði hjálpar líkamanum að hjálpa sér sjálfur, það eru ekki ný vísindi.
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 11:38
Sæll Ólafur
Long time no see!
Auðvitað er þetta bara megrun og hollustufæði. Ekkert að því. Stólpípan síðan val hvers og eins.
En það er bara hið besta mál að heilsugeiranum sé gert ljóst að hann verði að fjalla faglega um þjónustu sína og lofa ekki meiru en hann getur staðfest og staðið við.
Kristinn Theódórsson, 14.6.2010 kl. 12:01
Ég held þú sért að misskilja, Ólafur. Það er ekki meðferðin sem slík sem menn setja sig upp á móti, heldur himinhrópandi ýkjurnar og lygin um gagnsemi sem er notuð til að auglýsa hana.
Helgi Briem (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 12:06
Þetta er alveg frábært sumarat. Loksins var Jónína krafin um staðreyndir.
Beinum þessum kyndli að fleiri aðillum.
Fyrsta stopp, heilsuhillurnar í apótekinu.
Arnar Pálsson, 14.6.2010 kl. 17:48
Já sælir piltar og stúlkur, long time :)
Það verður að taka undir það að sölumennskan er oft á tíðum langt yfir skynsemislínur og getur vakið falskar vonir hjá fólki með undirliggjandi alvarlega sjúkdóma. Eitt er magnað með hana Jónínu að henni tekst alltaf að vera í umræðunni og vekja athygli á sér og sinni iðju, ómetanlegar ókeypis auglýsingar, það er sama hversu neikvæð umræðan verður, það er alltaf nóg af fólki sem vill trúa því sem hún er að selja og því meira sem Detox Jónínu er gagnrýnt því sannfærðara verður sá hópur um ágæti meðferðarinnar :)
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning