Trúarlífið rannsakað - hvorki vitrænt né sérlega gott?
2.1.2011 | 23:14
Hér eru niðurstöður nokkurra rannsókna á trúartengdum málum:
- Guð vill það sama og þú; við sköpum guði í eigin mynd.
- Trúarbrögð virka eins og þunglyndislyf, og fólk snýr sér til trúarbragða þegar því finnst líf þess óviðráðanlegt.
- Fólk virðist snúa sér að trú vegna félagslegra vandamála.
- Að biðja fyrir veiku fólki virkar ekki.
- Trúarleg ástundun, en ekki trú, hefur fylgni við aukið heilbrigði, færri sjálfsmorð, minna framhjáhald, og aukið óþol fyrir annarri menningu (out groups).
- Trúlausar þjóðir eru friðsælastar.
- Trúlausasta menntafólkið eru heimspekingar og sálfræðingar.
- Trúað fólk hefur hlutfallslega dapra málhæfni og vísindaþekkingu (kunnáttu), en það er bókmenntanám (ekki vísindi) sem er líklegast til að valda trúarmissi.
- Trúarlegir fordómar eiga sér upptök í sömu taugaboðleiðunum og kynda kynþáttahatur.
- Trúarbrögð hafa engin áhrif á kynhegðun unglinga, en valda því að eldra fólk stundar minna kynlíf.
- Krakkar með hóflega trúarsannfæringu eru líklegastir til að eiga við tilfinningalegar raskanir að stríða.
Fengið að láni á Common Sense Atheism
Ég er ekki að segja að ég telji þetta allt saman rétt, en hitt tel ég ljóst að trúarbrögð hafa ókosti.
Flokkur: Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:55 | Facebook


ace
apalsson
biggihs
egill75
evaice
jaherna
zeriaph
hjaltirunar
hoskibui
naflaskodun
prakkarinn
tannibowie
maggadora
orvitinn
mofi
omnivore
petur
sviss
robertb
sindri79
steinn33
stjornuskodun
svanurg
svanurmd
svatli
saemi7
valgardur
vigga
agbjarn
olijon
weapon
Athugasemdir
Færðu bara engin viðbrögð við þessu.
Ætli fólk sé farið að sjá í gegnum þig
Angantýr (IP-tala skráð) 3.1.2011 kl. 16:37
Það sjá líklega bara allir sannleikann í þessu og því ekki um neitt að fjasa ;-)
Kristinn Theódórsson, 3.1.2011 kl. 20:11
....nema náttúrulega að þessar fullyrðingar séu uppfullar af veruleikafyrringu og ofstæki. Ætli það sé ekki frekar það ;-)
Annars stórmerkilegt hvað netið getur annars verið góð therapía fyrir alls kyns hópa, þó að náttúrulega galli er á gjöf Njarðar að veruleikafyrringin eykst, en ekkert er fullkomið
Angantýr (IP-tala skráð) 3.1.2011 kl. 21:42
"fyrringu" og "ofstæki"?
Þetta virðast vera niðurstöður yfirfarinnar athuganna. Af þeim má síðan draga ýmsar ályktanir. Trúarbrögð hafa einfaldlega sína ókosti eins og svo margt annað.
Kristinn Theódórsson, 3.1.2011 kl. 22:12
Það eru sem sagt ekki ályktanir þarna
Ja, hérna, hættum þessu. Ég held að veruleikafyrringin hjá þér sé að verað sjúkleg.
Angantýr (IP-tala skráð) 3.1.2011 kl. 22:53
Ég sagði hvergi að þarna væru engar ályktanir dregnar. Ég efaðist bara um að lýsing þín á þeim væri rétt eða sanngjörn.
Fyrring hvers er vandamálið hérna...
Kristinn Theódórsson, 3.1.2011 kl. 23:03
Ertu virkilega ekki að fatta þetta.
Jæja, það þarf ekkert að segja meira. Þú ert einfaldlega sorglegur einstaklingur. Þó að þú sért ekkert einn um það í þínum hópi. Þetta er ekkert illa meint. Kannski er ég bara að misskilja þig, og ofstækið sé bara leikur hjá þér. Maður veit aldrei
Angantýr (IP-tala skráð) 3.1.2011 kl. 23:59
Vá skólabókardæmi um að mála sig út í horn. Þetta er þó ekki Guðbergur "Grefillinn sjálfur" Ísleifsson?
Sveinn Þórhallsson, 4.1.2011 kl. 09:25
Nei, þessi hefur kallað sig Jóhannes og margt fleira.
Angantýr, ef niðurstöðurnar eru rökréttar og byggðar á sæmilega áreiðanlegum gögnum, er þá ekki rétt að álykta að eitthvað sé að marka þær, án þess þó að það sé gefið að þetta sé eina hliðin á málinu?
Kristinn Theódórsson, 4.1.2011 kl. 09:28
Jæja, takk allavega fyrir að minna mig á vefinn CSA. Hef ekki farið þangað inn í ár ;-)
Sveinn Þórhallsson, 4.1.2011 kl. 09:34
Eini sorglegi eintaklingur hér er Angantýr í staðinn fyrir að gagnrýni málefnið sem hann getur ekki fer hann í Kristinn.
I´m going to create man and women with original sin.
Then i´m going to impregnate a women with myself as her child,so that i can be born. Once alive,i will kill myself as a sacrifice to myself. To save you from the sin i originally condemned you to.
Ta dah!!!
Arnar (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 13:45
Ég ber virðingu fyrir því hversu eljusamur þú ert Kristinn að gagnrýna trúarbrögð og halda efanum við efnið... ég er hvorki guðlaus né trúaður maður hvað svo sem það þýðir, nema þá helst að trúarbrögð í mínum huga skyggja á þann udursama veruleika sem við finnum okkur í ..... "keep up the good work"... en eins og náungi einn sagði hér til forna þá þarf að brjóta niður það gamla og staðnaða til að geta byggt upp að nýju :)
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 17:10
Ólafur,
Þó að þú metir góðan deilufélaga mikið, og man ég nú mikið eftir því að þú varst að gera eiganda síðunnar gráhærðan á tímabili, og þið kölluðuð hvorn annan öllum illum nöfnum, þá hlýtur jafnvel þú að einhver mörk hljóta að vera í vitleysunni.
...annars gaman að sjá gömlu grúppíurnar Arnar og Svein á ferli. Þið sverjið ykkur vel að trúfélaga ykkar
Angantýr (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 19:38
Þakka þér fyrir það, Ólafur. Sé maður þeirrar skoðunar að trúarbrögð séu óheppileg og ósönn hlýtur að vera eðlilegt að maður fjalli um ókosti þeirra og bendi á aðrar leiðir.
Angantýr virðist ekki komast upp úr sandkassanum. Ekkert tekið á málefninu, bara skotið og broskarlar á eftir hverju innleggi.
Kristinn Theódórsson, 4.1.2011 kl. 20:11
Það er sumt sem er ekki svaravert, jafnvel sú viðleitni að segja, að það er ekki svaravert, er fullkomin kurteisi í þessu samhengi, og ég skal núna sleppa broskarlinum.
Angantýr (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 21:04
Ég er ekki í neinu trúfélagi og þú ert ekkert kurteis heldur.
Arnar (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 22:14
Arnar,
Jæja, er ekki ágætt að hætta þessu núna
Angantýr (IP-tala skráð) 5.1.2011 kl. 15:27
Hæ.
"I count religion but a childish toy, and hold there is no sin but ignorance" Er sagt að Christopher Marlowe trúleysingji hafi sagt eitt sinn.
Mér finnst þessar "fullyrðingar" þínar Kristinn ekkert vera uppfullar að veruleikafyrringu og ofstæki eins og einhver svarinn óvinur þinn heldur fram hér að ofan. Þetta hljómar mjög sennilega, og ég dreg ekkert þessar rannsóknir í efa, það eru þær ályktanir sem dregnar eru út frá þessum rannsóknum sem ég verð ekki sammála þér.
Það að X og Y séu tengd þýðir ekki endilega að X valdi Y, dæmi um þetta er innhverfa og bólusetningar.
Mér finnst ástæður ókostum trúarbragða skýra sig sjálfir þegar maður rennir yfir þennan lista. Þar finnst mér atriði no 3 skýra mikið.
Einmitt af því að fólk sem á við félagslegan eða er í hremmingum einhverskonar er líklegra til þess að snúa sér til trúar er það einmitt það fólk sem er líklegt til þess að standa ver, vera minna upplýst og þar fram eftir götunum heldur en þeir sem eru trúlausir. Ef þú rennir t.d. yfir þær þjóðir þar sem trúleysi er mest í Evrópu og berð það saman síðan við það nám sem fólk fær í sömu þjóðum þá eru þar svipaða sögu að segja. Sjá Hér (oecd-education-rankings).
M.a í ljósi þessara upplýsinga get ég ekki tekið undir orð þín "[...]tel ég ljóst að trúarbrögð hafa ókosti." Ég myndi orða þetta frekar að það sé ljóst að lágt menntunarstig og slæm félagsleg staða fólks hefur í för með sér ýmsa ókosti sem birtast m.a. í formi ofstækistrúar.
M.b.k
Pétur
Pétur Eyþórsson, 5.1.2011 kl. 16:03
Sæll Pétur
Verð að svara þér á morgun. En eitt örstutt. Ef þú ert ósammála því að trúarbrögð hafi ókosti, ertu þá ekki að segja að trúarbrögð hafi enga ókosti?
Kristinn Theódórsson, 5.1.2011 kl. 17:13
Sæll Kristinn.
Nei ég var ekki að segja að trúarbörð hefðu enga ókosti. Ég var hinsvegar að benda á að trúarostæki (sem er ókostur) er ein birtingarmynd þjóðfélagslegra vandamála.
Pétur Eyþórsson, 6.1.2011 kl. 16:43
Angantýr.... ég hef eflaust bætt við gráu hárin hans Kristins enda erum við engir já bræður og oft ósammála, þó ekki alltaf... en ég man ekki eftir að hafa kallað menn hér illum nöfnum.
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 18:28
Pétur
Þannig að við erum þá, þvert á orð þín, sammála um að trúarbrögð hafi sína ókosti?
Kristinn Theódórsson, 6.1.2011 kl. 23:36
Haha, þú málar mig ekki svona út í horn Kristinn :)
Trúarbrögð eru hvorki vond eða góð frekar en þekking er vond eða góð, það er alfarið í höndunum á þeim sem notar hana hvort hún verður vond eða góð.
Pétur Eyþórsson, 7.1.2011 kl. 00:22
Pétur
Ég talaði ekki um vont eða gott, ég sagði að þau hefðu ókosti og fyrst sagðist þú vera því ósammála, síðan ertu því sammála, en þó ekki... ;-)
Málið er náttúrulega að ég veit alveg hvert þú ert að fara með þetta. Þú ert einmitt alltaf að reyna að halda því fram að ekkert sé í sjálfu sér óheppilegt nema mannlegt eðli valdi því að það sé óheppilegt.
Þá ertu hinsvegar að villa á þér heimildum með því að segjast ekki samþykkja að þetta eða hitt sé svona eða hinseginn. Þú ert t.d. ekki að ræða hér við mig um að trúarbrögð séu heppileg eða óheppileg, þú ert einfaldlega að halda því fram að þannig sé ekki hægt að tala um nokkurn hlut af því tagi og það hef ég áður rekið ofan í þig, svo ég skil ekki þessa endurtekningu alltaf á því atriði.
Ef hægt er að tala um að menning sé óheppileg, þá er vel hægt að færa rök fyrir því að trúarbrögð séu óheppileg menning. En þyki það gefið að menning sé einungis afleiðing af öðrum þáttum og að þeir þættir séu þeir einu sem eru til umræðu, þá er vitaskuld ekki hægt að ráðast í að dæma menninguna á einn eða annan veg.
En eins og áður segir, þá erum við búnir að fara í gegnum þetta áður ég og þú og ég hef ekki orðið var við að þú getir varið þá hugmynd að ekki megi telja eina menningu verri en aðra. Þar sem þú getur ekki varið þá hugmynd þykir mér þú þurfa að gefa þann vinkil eftir og taka þátt í umræðunni á þeim forsendum sem ég er að leggja til, í stað þess að láta eins og hinn vinkillinn standi ennþá.
Staðreyndin er að trúarbrögð eru ekki bara hlutlaus flík sem tekur á sig form þess sem klæðist henni, heldur móta þau líka þann sem klæðist þeim. Þess vegna skiptir það máli hvernig trúarbrögðin eru. Það er því vel hægt að amast út í suma þætti þeirra, eða almennt snið þeirra og þykja eitthvað annað hljóta að geta verið betra.
Ef trúarbrögð hafa ókosti, sem þú neitar ekki, þá getur eitthvað annað betra (færri ókostir) hugsanlega komið í þeirra stað. Það er e.t.v. verðugt markmið.
Kristinn Theódórsson, 7.1.2011 kl. 00:42
Kristinn.
Gott, vont, kostir og gallar. Þú veist hvað ég var að meina.
Ég kannast ekki við að þú hafir rekið eitt né neitt ofan í mig varðandi þessa skoðun mína, það er að vísu orðið ansi langt síðan ég talaði við þig um þetta þannig að ég man nú ekki hvernig þær umræður enduðu.
Þú segir síðan þetta:
Ég sagði ekki að trúarbrögð væru alveg hlutlaus, það eru vissulega þættir í trúarbrögðum sem eru neikvæðir (vondir/slæmir/gallar eða hvað sem þú villt kalla það). Það sem síðan veldur því hvort neikvæðir þættir trúarbragða komi í ljós er ekki háð trúarbrögðunum sjálfum heldur aðrir utanaðkomandi þættir, mjög gott dæmi um slíkt er einmitt ein af þeim rannsóknum sem þú vísaðir í sjálfur hér í upphafi þ.e. atriði no 3.
Á meðan til er fólk eða þjóðir sem hafa félagsleg eða þjóðfélagsleg vandamál við að stríða mun alltaf vera mikil hætta á trúarofstæki í þeim hópum óháð trúnni eða hvoru megin við línuna sem fólk kann að vera.
Kristinn:
Já sammála þér en ég tel mun árangursríkara markmið að einbeita sér að því þá að leysa félagsleg vandamál fólks og með því að auka menntun þess, trúarofstækið mun þá hverfa eins og dögg fyrir sólu. Ísland er mjög gott dæmi um þetta, það var mikil trú hérna aðeins 150 árum síðan, en í dag er öldin önnur
Pétur Eyþórsson, 7.1.2011 kl. 10:30
Hér er gamla umræðan: http://andmenning.blog.is/blog/andmenning/entry/902574/
Kristinn Theódórsson, 7.1.2011 kl. 10:54
Kristinn skrifar,
Það er því vel hægt að amast út í suma þætti þeirra, eða almennt snið þeirra og þykja eitthvað annað hljóta að geta verið betra.
Sagðir þú ekki að það væri hroki að telja sína menningu, trú, lífsskoðun betri en trú/lífsskoðun náungans!
...eru menn enn einu sinni að festast í sama farinu. Ég sem hélt að ein gullna reglan hjá þér væri lærdómur
, jæja.....
.
Angantýr (IP-tala skráð) 7.1.2011 kl. 18:15
Fyrir mig þá hafa allir sýn á heiminn, ( þeir sem hafa vitsmuni og meðvitund ) og þessi sýn er þeirra trú. Þetta eru svör við stóru spurningum lífsins sem allir svara í trú en ekki þekkingu. Góð trú getur haft góð áhrif eins og ein af þessum rannsóknum benti sterklega til ( Krakkar með hóflega trúarsannfæringu eru líklegastir til að eiga við tilfinningalegar raskanir að stríða.)
Sú trú sem ég ...trúi, að sé skaðlegust er sú trú sem heldur að það er enginn tilgangur í lífinu, það er engin von út fyrir þetta líf og það er í rauninni ekki neitt raunverulegt rétt og rangt til. Þetta myndi vera guðleysis trúin. Hafa í huga að ég er að tala um áhrif því að við erum öll einstaklingar með alls konar þarfir og langanir og trúin getur aðeins haft áhrif á okkur en ekki tryggt ákveðna hegðun.
Mofi, 14.1.2011 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning